fitjar

verðlisti og pantanir


Verð frá 6.000 isk/35 euro

Morgunverður 1.250 isk
ókeypis fyrir börn undir 7 ára.

reservation

EnglishIcelandicSwedish

Þórsmörk Náttúruperla Íslands

Þórslaug

Þórslaug er heit laug í Húsadal sem bætir við þá ánægjulegu reynslu að vera þar. Munið eftir að taka sundfötin með ykkur!
Stórkostleg fjöll, jöklar og stórfljót, einstakur gróður og veðursæld.
Hópferðir eftir pöntunum.
Áætlunarferðir daglega frá 15. júní - 14. september með Kynnisferðum.

Þórsmörk er ein af fegurstu náttúruperlum Íslands, umlukin náttúrulegum farartálmum svo sem fjöllum, jöklum og jökulám. Það er því ekki ráðlegt að fara í Þórsmörk nema á vel útbúnum jeppum og rútum.
Þórsmörk markast af Krossá í suðri, Markarfljóti í vestri, Ljósá í norðri og Mýrdalsjökli í austri. Mikil veðursæld er í „Mörkinni“, enda er hún í skjóli jökla og veðurfar oft mjög frábrugðið því sem gerist í nágrannasveitum.

Frá skálunum í Húsadal er hægt að fara merktar gönguleiðir í ýmsar áttir. Stutt leið er í Sóttarhelli, Markarfljótsgljúfur og Sönghelli svo eitthvað sé nefnt. Stígur er af Valahnjúk niður í mynni Langadals. Þaðan má fara inn dalinn yfir í Húsadal eða yfir Krossá á göngubrú undir Valahnjúk yfir í Goðaland og Bása. Upp úr botni Húsadals er greiðust leið yfir í Hamraskóga og þaðan áfram „Laugaveginn“ sem er 50 km stikuð gönguleið yfir í Landmannalaugar. Einnig er góð gönguleið úr botni Húsadals yfir Slyppugilshrygg og áfram meðfram Tindfjallagili að Tröllakirkju en þaðan er góð leið á Rjúpnafell og Mófell. Hægt er að halda áfram hringinn og koma niður Stangarháls og ganga aurana meðfram Krossá yfir í Langadal

readmore



move mouse over picture for further info.

Fitjar Guesthouse

location

location

Google Maps JavaScript API Example


Gistiheimilið Fitjar er staðsett rétt norðan við Mosfellsbæ sem er lítið bæjarfélag rétt fyrir utan Reykjavík.