Hæð: 914 metrar yfir sjávarmáli
Staðsetning: Kjalarnes
Esja er fjall sem stendur við Kjalarnes í Reykjavík og er
eitt af einkennum höfuðborgarsvæðisins. Útsýni
yfir fjallið hefur í gegnum tíðina haft áhrif á
fasteignaverð á svæðinu, og til er fólk sem segist
geta spáð fyrir um veðrið út frá litunum í
fjallinu. Hæsti tindur Esjunnar er 914 metrar. Nokkrar gönguleiðir
eru upp á fjallið og þar eru vinsæl útivistarsvæði.
Esja er syðsta blágrýtisfjall á Íslandi.
Hæsti kambur á Esju miðri, séð úr Reykjavík,
heitir Kerhólakambur.
Nafnið "Esja"
Í Kjalnesinga sögu er talað um bæinn Esjuberg þar
sem landnámsmaðurinn Örlygur Hrappsson bjó þegar
hann kom til Íslands frá Suðureyjum í Skotlandi. Í
sögunni er sagt frá því að írsk kona að
nafni Esja hafi komið í Kollafjörð og hafa menn þá
leitt að því líkum að nafnið sé írskt
að uppruna. Sennilegri skýring er þó að orðið
sé komið úr norrænu, en það er meðal annars
þekkt í Noregi, og merkir "flögusteinn".
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]()
move mouse over picture
for further info.