Íþróttamiðstöðin Lágafell
Lækjarhlíð 1a, 270 Mosfellsbæ
Sími í afgreiðslu 517 6080
Sundlaugin er opin alla daga frá kl. 06:30 til 20:30
Helgaropnun frá 08:00 til 18:00
Fullorðnir: 360 kr
Börn: 110 kr
Sundlaugarsvæðið í Lágafelli er fjölbreytt
og ættu flestir að finna sér eitthvað sem hentar hverju
sinni. Svæðið skartar 25 metra sundlaug, sem er glæsileg
í alla staði. Fyrir þá sem vilja gera meira en að
synda er hægt að velja um 3 mismunandi heita potta.
Tveir þeirra eru hefðbundnir heitir pottar með hitastig á
bilinu 40-42 gráður. Sá þriðji er nuddpottur sem
gott er að sitja í og slaka á og láta nudda þreytta
vöðva. Hann er ekki eins heitur og hinir pottarnir. Á svæðinu
er einnig eimbað og sauna.
Fyrir börnin og líka auðvitað hina fullorðnu er vaðlaug
sem er tiltölulega grunn, hlý og hentar fyrir smáfólkið
og þá sem vilja liggja útaf og slaka og njóta sólarinnar,
sé hún í boði.
Fyrir þá allra hressustu á öllum aldi, eru þrjár
rennibrautir á svæðinu, ein opin breið um 12 metra og tvær
lokaðar, mislangar, eða frá 33-43 metrum. Farið er upp glerjaðan
rennibrautarturn og ferðin endar í lendingarlaug fyrir neðan,
sama laug fyrir allar brautir, svo það er best að vera varkár
og fylgja reglum!
Starfsfólk sundlaugarinnar vill ítreka við forráðamenn
barna að fylgjast vel með börnum sínum þegar þau
eru á svæðinu.
Innilaugin er með stillanlegum botni og hentar því vel fyrir
kennslu sem hún er óspart notuð í. Hún er einnig
opin fyrir almenning meginhluta sumars (Skólasund er í innilauginni
alla virka daga yfir vetrarmánuðina til kl. 18 og þriðju-
og miðvikudaga til klukkan 20:00 ).